Ræddi við feður sem beitt hafa ofbeldi og greindi 250 fréttir í doktorsrannsókn sinni

Menntavísindavarpið by Menntavísindavarpið

Episode notes

Rannveig Ágústa Guðjónsdóttir, aðjúnkt við Deild menntunar- og margbreytileika ræðir í nýjasta Menntavísindavarpi um doktorsrannsókn sína sem hún varði á dögunum. Heiti doktorsritgerðar Rannveigar er: Feður sem beitt hafa ofbeldi: Hindranir og möguleikar til breytinga. Niðurstöðurnar varpa m.a. ljósi á hvernig feðurnir takast á við óþægindi í frásögnum sínum af ofbeldi, föðurhlutverkinu og breytingum. Rannveig ræðir niðurstöðurnar, áskoranirnar við að rannsaka eldfim málefni og hvernig niðurstöður rannsóknarinnar geta nýst áfram.