Efling orðaforða barna er fyrst og fremst jöfnunartækifæri

Menntavísindavarpið by Menntavísindavarpið

Episode notes

Sigríður Ólafsdóttir, dósent á Menntavísindasviði Háskóla Íslands vinnur þessa stundina að rannsókninni Kennsluleiðbeiningar með námsorðaforða: Innleiðing lista yfir íslenskan námsorðaforða og gæðatexta með námsorðaforða í læsismenntun grunnskólanema. Listinn gefur upplýsingar um námsorð sem nemendur á mismunandi aldri þurfa að þekkja til að geta skilið, rætt og skrifað um það sem þeir fást við í námi. Sigríður ræðir í þættinum um eflingu orðaforða barna, orðaforða sem jöfnunartækifæri og árangursríka kennsluhætti með námsorðaforða.

Í lok árs 2026 verður kennsluhefti og nemendahefti gert aðgengilegt fyrir skóla til að nýta sér í kennslu.

 ...  Read more