Vestmannaeyjar - mannlíf og saga

di Vestmannaeyjar - mannlíf og saga

Hlaðvarpsþáttur þar sem litið er yfir líf og störf fólks sem tengist Vestmannaeyjum á einn eða annan þátt. Einnig verða lesin upp brot úr sögu Vestmannaeyja í samstarfi við Bókasafn Vestmannaeyja.

Episodi del podcast

  • Stagione 1

  • Opinn framboðsfundur 2022

    Opinn framboðsfundur 2022

    Að þessu sinni er þátturinn með öðruvísi sniði. Því nú verður spiluð upptaka af opnum framboðsfundi sem haldin var í gærkvöldi 11. maí. Takk fyrir að hlusta

  • Merkúr - Blind

    Merkúr - Blind

    Í fimmtugasta og fimmta þætti er rætt við peyjana í hljómsveitinni Merkúr. Peyjarnir segja söguna um stofnun hljómsveitarinnar, hvernig þeir koma sér á framfæri í tónlistinni, hvað er framundan hjá Merkúr og margt margt meira skemmtilegt. Í lok þáttarins fáum við að heyra nýja útgáfu af laginu Blind sem peyjarnir í Merkúr sömdu og spila.

  • Guðbjörg Rún Gyðudóttir Vestmann - Slys í Elliðaey

    Guðbjörg Rún Gyðudóttir Vestmann - Slys í Elliðaey

    Í fimmtugasta og fjórða þætti er rætt við Guðbjörgu Rún Gyðudóttur Vestmann. Gugga Rún eins og hún er kölluð ræðir við mig um fjölskylduna, æskuna, vinnuna, hvernig það kom til að hún flutti til Vestmannaeyja og margt, margt fleira. Í seinni hluta þáttarins er lesin upp stutt saga úr fórum Árna Árnasonar símritara, sem nefnist Slys í Elliðaey saga af séra Tómasi Sigurðssyni. Heimildir eru fengnar af Heimaslóð.is. Þetta sögubrot er í boði Bókasafns Vestmannaeyja Endilega fylgjið hlaðvarpinu á Facebook og Instagram undir nafninu Vestmannaeyjar – Mannlíf og saga.

  • Jóna Heiða Sigurlásdóttir - Elliheimili Vestmannaeyja 1950

    Jóna Heiða Sigurlásdóttir - Elliheimili Vestmannaeyja 1950

    Í fimmtugasta og þriðja þætti er rætt við Jónu Heiðu Sigurlásdóttur um lífshlaup hennar. Jóna Heiða ræðir við mig um fjölskylduna, æskuna, vinnuna, námið, listina og margt, margt fleira. Í seinni hluta þáttarins er fræðst um fyrsta Elliheimilið í Vestmannaeyjum sem var staðsett í húsinu Skálholti og aðeins farið yfir hvaða tilgangi húsið þjónaði. Heimildir eru fengnar af Heimaslóð.is. Endilega fylgjið hlaðvarpinu á Facebook og Instagram undir nafninu Vestmannaeyjar – Mannlíf og saga.

  • Hrefna Erlingsdóttir - Gæfusmiðurinn og lífið

    Hrefna Erlingsdóttir - Gæfusmiðurinn og lífið

    Í fimmtugasta og öðrum þætti er rætt við Hrefnu Erlingsdóttur um lífshlaup hennar, störf og veikindi. Hrefna ræðir við mig um fjölskylduna, æskuna, vinnuna, námið, heilablóðfallið, flutninginn á Selfoss, sjálfboðaliðastarfið og margt, margt fleira. Í seinni hluta þáttarins er lesin viska sem Ásta Engilbertsdóttir skrifaði árið 1939 í Blik. Heimildir eru fengnar af Heimaslóð.is. Endilega fylgjið hlaðvarpinu á Facebook og Instagram undir nafninu Vestmannaeyjar – Mannlíf og saga.