Episode notes
„Ástinni hefur verið haldið utan við hið akademíska rými lengst af, hún hefur verið meðhöndluð eins og trúarbrögð, ósnertanleg og eitthvað sem má ekki ræða, allra síst á rökfræðilegum nótum. Hún hefur verið tengd við geðveiki, í raun allt sem við getum hugsað sem óskynsamlegt,“ segir Berglind Rós Magnúsdóttir, prófessor við Menntavísindasvið í nýjasta þætti Menntavísindavarpsins.
Berglind Rós er prófessor í menntunarfræðum, er öflugur rannsakandi og hefur skoðað félagslegt réttlæti í menntun með áherslu á áhrif stéttar, uppruna, kynferðis sem jafnrétti í tengslum við uppeldi og menntun. En hún hefur jafnframt stundað ástarrannsóknir ásamt feminískum fræðikonum við HÍ og stofnaði Ástarrannsóknarfélagið árið 2016. Nýverið var bókin Ástarkraftur, gefin út sem Berglind ritstýrði ásamt Silju Bára Ómarsdóttur, rektor Háskóla Íslands. ...