Flekaskil - 14. þáttur
Flekaskil by Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir og Dagur B. Eggertsson
Episode notes
Heimurinn er breyttur og mikilvægt er að samfélagið horfist í augu við það og stjórnmálin taki mið af því. Í nýjum þætti Flekaskila ræðum við um eftirköst NATO-fundarins, fjöllum um nýjar afhjúpanir WSJ um rofið milli Bandaríkjanna, Evrópu og Kanda.
Ræðum skrif Baldurs Þórhallssonar prófessors í stjórnmálafræði og fyrrum forsetaframbjóðanda þar sem hann varar íslensk stjórnvöld við værukærð í garð breyttrar stöðu og mikilvægi þess að uppfæra mat á ógnum gagnvart fullveldi Íslands í víðu samhengi. Hann bendir á þann súrrealíska veruleika "að danski forsætisráðherrann þurfi að lýsa því yfir að Danir séu tilbúnir að verja konungsríkið reyni Bandaríkin - sem hafa hingað til verið helsti bandamaður þeirra - að hernema Grænland."
Þetta og fjölmargt fleira er á dagskrá í þessum fjórtánda þætti.