Sigurður Hólm Gunnarsson - ráðgjafi hjá Sjónarhóli - talar um einelti, Sjónarhól, baráttuna við þunglyndi, ofsakvíða ofl.
Allt um ættleiðingar by Selma Hafsteinsdottir
Episode notes
Sigurður var lagður í mikið og langvarandi einelti í grunnskóla, á þeim tímum var hugtakið einelti varla til og lítið sem ekkert gert í þeim málum. Hann hefur notað sína erfiðu lífreynslu til þess að hjálpa öðrum í gegnum tíðina, en afleiðingar eineltis fylgja manni ævilangt. Hann gaf út heimildarmyndina Einelti helvíti á jörðu árið 2002 sem notuð er ennþá sem fræðsluefni í skólum.
Sigurður er menntaður Iðjuþjálfi og vann lengi með fólki sem glímdi við geðrænan vanda.
Í dag vinnur Sigurður sem ráðgjafi hjá Sjónarhóli og er hann einnig með sinn eigin rekstur undir nafninu “allir sáttir” þar sem hann býður upp á ráðgjöf og sáttamiðlun.
Sigurður hefur í mörg ár verið að glíma við þunglyndi og svo seinna á lífsleiðinni ofsakvíða.
Sigurður er athafnastjóri hjá siðmennt, hann er þriggja barna faðir, hann er opi ...