Note sull'episodio
Í fimmtugasta og þriðja þætti er rætt við Jónu Heiðu Sigurlásdóttur um lífshlaup hennar. Jóna Heiða ræðir við mig um fjölskylduna, æskuna, vinnuna, námið, listina og margt, margt fleira.
Í seinni hluta þáttarins er fræðst um fyrsta Elliheimilið í Vestmannaeyjum sem var staðsett í húsinu Skálholti og aðeins farið yfir hvaða tilgangi húsið þjónaði.
Heimildir eru fengnar af Heimaslóð.is.
Endilega fylgjið hlaðvarpinu á Facebook og Instagram undir nafninu Vestmannaeyjar – Mannlíf og saga.
Parole chiave
vestmannaeyjarmannlífsagamannlíf og sagaalma eðvaldsdóttireyjarjóna heiða sigurlásdóttirelliheimili1950