Vestmannaeyjar - mannlíf og saga

Vestmannaeyjar - mannlíf og saga

di Vestmannaeyjar - mannlíf og saga
Stagione 1
Opinn framboðsfundur 2022
Að þessu sinni er þátturinn með öðruvísi sniði. Því nú verður spiluð upptaka af opnum framboðsfundi sem haldin var í gærkvöldi 11. maí. Takk fyrir að hlusta
Merkúr - Blind
Í fimmtugasta og fimmta þætti er rætt við peyjana í hljómsveitinni Merkúr. Peyjarnir segja söguna um stofnun hljómsveitarinnar, hvernig þeir koma sér á framfæri í tónlistinni, hvað er framundan hjá Merkúr og margt margt meira skemmtilegt. Í lok þáttarins fáum við að heyra nýja útgáfu af laginu Blind sem peyjarnir í Merkúr sömdu og spila.
Guðbjörg Rún Gyðudóttir Vestmann - Slys í Elliðaey
Í fimmtugasta og fjórða þætti er rætt við Guðbjörgu Rún Gyðudóttur Vestmann. Gugga Rún eins og hún er kölluð ræðir við mig um fjölskylduna, æskuna, vinnuna, hvernig það kom til að hún flutti til Vestmannaeyja og margt, margt fleira. Í seinni hluta þáttarins er lesin upp stutt saga úr fórum Árna Árnasonar símritara, sem nefnist Slys í Elliðaey saga af séra Tómasi Sigurðssyni. Heimildir eru fengnar af Heimaslóð.is. Þetta sögubrot er í boði Bókasafns Vestmannaeyja Endilega fylgjið hlaðvarpinu á Facebook og Instagram undir nafninu Vestmannaeyjar – Mannlíf og saga.
Jóna Heiða Sigurlásdóttir - Elliheimili Vestmannaeyja 1950
Í fimmtugasta og þriðja þætti er rætt við Jónu Heiðu Sigurlásdóttur um lífshlaup hennar. Jóna Heiða ræðir við mig um fjölskylduna, æskuna, vinnuna, námið, listina og margt, margt fleira. Í seinni hluta þáttarins er fræðst um fyrsta Elliheimilið í Vestmannaeyjum sem var staðsett í húsinu Skálholti og aðeins farið yfir hvaða tilgangi húsið þjónaði. Heimildir eru fengnar af Heimaslóð.is. Endilega fylgjið hlaðvarpinu á Facebook og Instagram undir nafninu Vestmannaeyjar – Mannlíf og saga.
Hrefna Erlingsdóttir - Gæfusmiðurinn og lífið
Í fimmtugasta og öðrum þætti er rætt við Hrefnu Erlingsdóttur um lífshlaup hennar, störf og veikindi. Hrefna ræðir við mig um fjölskylduna, æskuna, vinnuna, námið, heilablóðfallið, flutninginn á Selfoss, sjálfboðaliðastarfið og margt, margt fleira. Í seinni hluta þáttarins er lesin viska sem Ásta Engilbertsdóttir skrifaði árið 1939 í Blik. Heimildir eru fengnar af Heimaslóð.is. Endilega fylgjið hlaðvarpinu á Facebook og Instagram undir nafninu Vestmannaeyjar – Mannlíf og saga.
Ragnar Sigurjónsson - Grafskipið Vestmannaey
Í fimmtugasta og fyrsta þætti er rætt við Ragnar Sigurjónsson um lífshlaup hans og störf. Raggi eins og hann er oftast kallaður ræðir við mig um fjölskylduna, æskuna, verslunarrekstur, lífið i Viðey, fuglaáhugann og margt, margt fleira. Í seinni hluta þáttarins er lesin samantekt um Grafskipið Vesmannaey. Heimildir eru fengnar af Heimaslóð.is, einnig frá Kára Bjarnasyni á Bókasafninu og Sveini Valgeirssyni fyrrum starfsmanni Vestmannaeyjahafnar. Endilega fylgjið hlaðvarpinu á Facebook og Instagram undir nafninu Vestmannaeyjar – Mannlíf og saga.
Molda - Herhlaup Tyrkjans
Í fimmtugasta þætti í hlaðvarpinu er rætt við peyjana í Molda og forvitnast um hljómsveitarlífið og hvað er framundan hjá bandinu og margt annað. Peyjarnir sem skipa hljómsveitina Molda eru þeir Albert Snær Tórshamar, Helgi Rasmussen Tórshamar, Þórir Rúnar Geirsson kallaður Dúni og Birkir Ingason. Í seinni hluta þáttarins fáum við að heyra nýja lagið þeirra peyjana í Molda sem heitir Herhlaup Tyrkjans. Endilega fylgjið okkur á Facebook og Instagram undir nafninu Vestmannaeyjar – Mannlíf og saga.
#49 Gísli Matthías Auðunsson
Fertugasti og níundi Þáttur. Þátturinn er mjög heimilislegur að þessu sinni, Flóki hlaupandi um að leika sér, þar sem að þátturinn var tekinn upp heima okkur á Bjarmalandi Að þessu sinni er rætt við Gísla Matthías Auðunsson. Gísli Matthías ræðir við okkur um fjölskylduna, æskuna, fótboltann, matreiðsluna, nýja veitingastaðinn og nýju bókina sína og margt fleira. Því miður verður smá breyting á þættinum og sögubrotið sem átti að vera, verður lesið seinna þar sem að ég er orðin lasin og náði mér í covid, og ég er ekki fær um að lesa sögubrotið að þessu sinni. En Gísli Matthías bætir okkur það upp með sögum úr lífi sínu. Endilega fylgjið okkur á Facebook og Instagram undir nafninu Vestmannaeyjar – Mannlíf og saga. Takk kærlega fyrir að hlusta og kærar þakkir fyrir fallegu kveðjurnar sem ég hef verið að fá frá ykkur. Kær kveðja Alma Eðvaldsdóttir
#48 Einar Kristinn Kárason - Vatn til Vestmannaeyja
Í fertugasta og áttunda þætti er rætt við Einar Kristinn Kárason og forvitnast um líf hans og störf. Einar Kristinn ræðir við okkur um íþróttir, fótbolti, fjölskylduna, vinnuna, tísku, saumaskap og margt fleira. Í seinni hluta þáttarins fáum við að heyra stutt ágrip um sögu vatnsins í Vestmannaeyjum. Endilega fylgjið okkur á Facebook og Instagram undir nafninu Vestmannaeyjar – Mannlíf og saga.
#47 Foreign Monkeys - Those that suffer
Í fertugasta og sjöunda þætti er rætt við peyjana í The Foreigns Monkeys og forvitnast um líf þeirra og störf. Peyjarnir í hljómsveitinni eru þeir Bogi Ágúst Rúnarsson, Gísli Stefánsson og Víðir Heiðdal Nenonen . Í seinni hluta þáttarins fáum við að heyra nýja lagið þeirra peyjana í Foreign Monkeys. Endilega fylgjið okkur á Facebook og Instagram undir nafninu Vestmannaeyjar – Mannlíf og saga.
1 di 7