Episode notes
Bergrún er með ótrúlegan kraft og í raun framúrstefnulega hugsun þegar kemur að því að nýta matvæli. Hún þekkir það vel sjálf að þurfa að spara og nýta vel það sem er í ísskápnum og hefur risastórt hjarta, bæði gagnvart þeim sem minna mega sín og móður jörð. Hún hikar ekki við að fara með afganga í Frískápana svokölluðu sem eru víðsvegar um bæinn og segir okkur frá því þegar hún fór í frí og tæmdi ísskápinn sinn og fór með allt í Frískáp. Hún grípur sér líka stundum samloku þar fyrir sjálfa sig þegar hún er á hlaupum eða að keyra á milli verslana. Henni finnst að slíkir ísskápar eigi ekki eingöngu að þjóna þeim sem hafa lítið á milli handanna heldur að verða til þess að við öll nýtum matvæli betur og sækjum þangað mat ef svo ber undir og setjum að sjálfsögðu matvæli þangað á móti. Í starfi sínu hjá Hjálpræðishernum leiddi Bergrún verkefni um mata ...
... Read more