Textílvarp 2. 2026

Textílvarp Rannsóknarstofu í textíl di Ásdís Jóelsdóttir
S2026 · E2
1 giu 2026
31:57

Note sull'episodio

Textílvarpið fékk myndlista- og textíllistakonuna Rögnu Fróðadóttur í viðtal. Ragna lærði fata- og textílhönnun í París á árunum 1992-1995 og síðar við textíldeild Myndlista- og handíðarskólans frá 1996-1998. Ragna var um árabil deildastjóri textíldeildar Myndlistaskóla Reykjavíkur og formaður Textílfélagsins. Undanfarin 15 ár hefur Ragna búið og starfað til skiptis í New York, Berlín og Reykjavík. Hún var stödd hér á landi tímabundið vegna einkasýninga sinnar Bergmál í Hafnaborg. Þar bauð hún okkur ínn í töfrandi heim mynstra, lita, forma og áferða. Hún tekur einning þátt í vinnustofudvöl og þátttöku í Alþjóðlegu listahátíðinni Oceanus Hafsjór sem fer fram á Eyrabakka 15.maí-15.júní í ár. Hægt að skoða dagskrá á heimsíðu hátíðarinnar. https://www.oceanushafsjor.com/ Fyrir áhugasama þá verður opnunarhátíð 13.júní frá kl.13-18 á Eyrabakka.

Til að vita meira um Rögnu Fróða þá er hún með vefsíðu https://www.ragnafroda.com/ og https://www.instagram.com/frodadottir/