Note sull'episodio
Í þessum þætti Menntavísindavarpsins mæta meistaranemarnir, Aníta Jasmín Finnsdóttir meistaranemi í uppeldis- og menntunarfræði og Þórunn Kristín Erlingsdóttir, meistaranemi á námsleiðinni: Menntun allra og sérkennslufræði og segja hlustendum frá meistaraverkefnum sínum sem þær kynntu á dögunum. Aníta Jasmín segir frá rannsókn sinni og meistaraverkefni sem ber heitið „Útvalin eða útilokuð: Valferli og aðgengi nemendaráða í íslenskum grunnskólum“ og Þórunn Kristín segir frá rannsókn sinni og meistaraverkefni sem heitir „Námsrými í íslenskuverum Reykjavíkurborgar“.