Note sull'episodio
Hanna Ragnarsdóttir er prófessor í fjölmenningarfræðum við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Hún kíkti í Menntavísindavarpið og ræddi meðal annars stóra rannsókna sem hún leiðir og vinnu í samstarfi við þverfaglegt teymi. Rannsóknin ber heitið ESRCI – Saman eða sundruð? Menntun og félagsleg þátttaka flóttabarna og ungmenna á Íslandi þar sem aðlögun flóttabarna og -ungmenna á leik-, grunn- og framhaldsskólastigi er skoðuð.