22. Ungar stúlkur og eldri menn: Half his Age eftir Jeanette McCurdy

Hlaðvarp Lestrarklefans di Lestrarklefinn

Note sull'episodio

Díana Sjöfn og Sjöfn ræða bókina "Half his Age" eftir unghöfundinn Jeanette McCurdy, sem þekktust er fyrir feril sinn á Disney stöðinni og fyrir endurminningarsögu sína "I'm Glad My Mom Died."

Bókin fellur í flokk þeirra ritverka sem fjalla um ungar konur eða stelpur sem eiga í ástarsamböndum við, eða eru táldregnar af, eldri mönnum, sem eiga það mjög oft sameiginlegt að vera enskukennarar. Hvers vegna eru þessar sögur svona vinsælar? Hvað lærum við á að lesa þær ef eitthvað? Og hvers vegna halda allir að enskukennarar séu þeir kennarar sem eru hvað líklegastir til að beita nemenda sína kynferðisofbeldi?

Umsjón: Sjöfn Asare og Díana Sjöfn

Parole chiave
booksbækurlestrarklefinnreadinglesturbókmenntirmenningleikhústheatre