Hlaðvarp Lestrarklefans

Hlaðvarp Lestrarklefans

di Lestrarklefinn
Stagione 2
24. Leirburður í grasrótinni
Lestrarklefinn fær góða gesti í hlaðvarpi vikunnar, Elísu Rún Svansdóttur og Amöndu Líf Fritzdóttur, sem báðar hafa ritstýrt bókmenntatímaritinu Leirburði. Tímarit sem þessi eru einstaklega mikilvæg grasrótinni og Rebekka Sif fékk að forvitnast um þetta góða starf bókmenntafræðinema Háskóla Íslands. Umsjónarmaður: Rebekka Sif Stefánsdóttir
23. Hefðbundnar húsmæður: Yesteryear eftir Caro Claire Burke
Rebekka og Sjöfn ræða hina geysivinsælu skáldsögu Yesteryear sem hefur aldeilis slegið í gegn á skömmum tíma. Rebekka spyr Sjöfn út í hefðbundnar húsmæður (e. Tradwives), en Sjöfn hefur kafað djúpt í þennan áhugaverða og merkilega mormónska subkúltúr sem tröllríður samfélagsmiðlum og hefur djúpstæð áhrif víða um samfélagið. Umsjón: Rebekka Sif og Sjöfn Asare
22. Ungar stúlkur og eldri menn: Half his Age eftir Jeanette McCurdy
Díana Sjöfn og Sjöfn ræða bókina "Half his Age" eftir unghöfundinn Jeanette McCurdy, sem þekktust er fyrir feril sinn á Disney stöðinni og fyrir endurminningarsögu sína "I'm Glad My Mom Died." Bókin fellur í flokk þeirra ritverka sem fjalla um ungar konur eða stelpur sem eiga í ástarsamböndum við, eða eru táldregnar af, eldri mönnum, sem eiga það mjög oft sameiginlegt að vera enskukennarar. Hvers vegna eru þessar sögur svona vinsælar? Hvað lærum við á að lesa þær ef eitthvað? Og hvers vegna halda allir að enskukennarar séu þeir kennarar sem eru hvað líklegastir til að beita nemenda sína kynferðisofbeldi? Umsjón: Sjöfn Asare og Díana Sjöfn
21. Úr bók í bíó: Wuthering Heights
Úr bók í bíó snýr aftur með æsispennandi umfjöllun um hina umdeildu aðlögun "Wuthering Heights," sem Sjöfn gerist svo djörf að kalla það versta sem nokkru sinni hefur verið fest á filmu og kallað bíómynd. Umsjón: Sjöfn Asare og Rebekka Sif
20. Hinsegin aðstæður með Evu Rún og Höllu Þórlaugu
Jæja. Eftir mikla tæknilega örðugleika við framleiðslu og útgáfu þáttarins um bókmenntahátíðina Queer Situations snýr hann aftur á streymið. Sjöfn og Unnur Steina ræða við þær Evu Rún og Höllu um æsispennandi bókmenntahátíðina sem þær standa fyrir þar sem alls konar hinsegin bókmenntir eru í fyrirrúmi. Umsjón: Sjöfn Asare
19. Úr bók í bíó: Hamnet
Við kynnum nýjan dagskrárlið: Úr bók í bíó! Rebekka Sif segir að þessu sinni Sjöfn Asare af upplifun sinni á sögulegu skáldsögunni Hamnet og kvikmyndaaðlögun hennar. Kafað er ofan í frásagnaraðferðir Maggie O´Farrell og hvernig henni tekst að glæða gamla sögu nýju og hrífandi lífi. Umsjónarmenn: Rebekka Sif Stefánsdóttir og Sjöfn Asare
18. Leikhúsannáll Lestrarklefans
Leikhúsgagnrýnendurnir okkar Díana Sjöfn og Sjöfn Asare fara yfir liðið leikár og líta til þess sem er spennandi í leikhúsunum 2026. Umsjónarmenn: Díana Sjöfn Jóhannsdóttir og Sjöfn Asare.
13. Hrollvekjur með Gunnari Theodóri
Hrekkjavaka og hræðilegar verur hafa tekið yfir bókmenntirnar þessa dagana. Við fengum Gunnar Theodór til okkar sem hefur einmitt skrifað nokkrar hrollvekjur, þar á meðal Vatnið brennur og Álfareiðina, sem er nýútkomin og er ætluð ungmennum. Kannið með okkur hryllilegar slóðir í hlaðvarpi dagsins. Það er vel við hæfi að þátturinn sé einmitt númer þrettán! Umsjónarmenn: Rebekka Sif og Sjöfn Asare
12. Landslag ljóðsins með Maó
Í þætti dagsins fáum við góðan gest, ljóðskáldið og rithöfundinn Maó Alheimsdóttur, sem gaf nýverið út ljóðabókina Hvalbak. Við ræðum um ljóðið, náttúruna og innblásturinn. Stjórendur hlaðvarpsins eru Rebekka Sif, Díana Sjöfn og Sjöfn Asare.
17. Bókmenntaskandalar ársins 2025
Í þessum hressilega hátíðarþætti Hlaðvarps Lestrarklefans fara Rebekka, Díana og Sjöfn yfir bókmenntaskandala ársins 2026. Er Laxness úti? Arnaldur líka? Hver á að skrifa ungmennabækur? Hver er Akörn? Mun Bókaklúbbur Íslands fordæma þennan þátt? Gleðilegt nýtt lestrarár kæru lesendur! Umsjónarmenn: Rebekka Sif, Díana Sjöfn og Sjöfn Asare
1 di 3