Flekaskil

Flekaskil

di Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir og Dagur B. Eggertsson

Flekaskil - 17. þáttur - Kettir, hattar, loftslagsmál, Gaza, bresk stjórnmál og verðugir bandamenn

Þórdís Kolbrún verður sendiherra - hvað verður um köttinn? Við fjöllum um hatta og hattakaup og hvað sendiherrastaða útheimtir. Yfirlýsingar Mandami borgarstjóra New York og Andy Burnham fyrrum borgarstjóra Manchester og nýs forsætisráðherra Bretlands um Gaza. Nýtt álit um stöðu lofstslagsskuldbindinga skv. alþjóðalögum og fjölda greina um hvað það þýðir að vera verðugur bandamaður, sem birtist í timariti Vörðu - og muninum á stjórnmálum og pólitík.

Flekaskil - 16. þáttur - Kristrún í Rest is Politics og Þórdís Kolbrún í Skálholti

Í sextánda þætti Flekaskila - og þeim síðasta áður en Þórdís Kolbrún verður formlega sendiherra í London tölum við um glænýtt viðtal við Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra í uppáhalds hlaðvarpinu okkar Rest is Politics. Dagur nýtir sé aðstöðuna til að ræða við Þórdísi um hátíðarræðu hennar á Skálholtshátíð þar sem alþjóðamálin, Evrópuumræðan og staða Íslands var í brennidepli. Hin ótrúlega og alvarlega staða í Íran er áfram á dagskrá og eins og gjarnan er komið víða við - á þessu sinni á sólbökuðu Óðinstorg. Rest is politics þáttur með Kristrúnu: https://www.youtube.com/watch?v=dbRCjtCw4LM Skálholtsræða Þórdísar: https://thordiskolbrun.is/hatidarraeda-a-skalholtshatid/

Flekaskil - 15. þáttur

Við rifjum upp lítt þekkta greningu Ásgeirs Jónssonar Seðlabankastjóra frá 2014 um hver áhrifin af upptök evru í stað krónu yrðu. Sú umfjöllun var í jafnvægi en niðurstaðan engu að síður skýr. Við tölum um sögu íslensku krónunnar, gjaldmiðlasamstarf Íslands í gengum tíðina - og veltum vöngum yfir Evrópuumræðunni í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar um framhald viðræðna við Evrópusambandið.

Flekaskil - 14. þáttur

Heimurinn er breyttur og mikilvægt er að samfélagið horfist í augu við það og stjórnmálin taki mið af því. Í nýjum þætti Flekaskila ræðum við um eftirköst NATO-fundarins, fjöllum um nýjar afhjúpanir WSJ um rofið milli Bandaríkjanna, Evrópu og Kanda. Ræðum skrif Baldurs Þórhallssonar prófessors í stjórnmálafræði og fyrrum forsetaframbjóðanda þar sem hann varar íslensk stjórnvöld við værukærð í garð breyttrar stöðu og mikilvægi þess að uppfæra mat á ógnum gagnvart fullveldi Íslands í víðu samhengi. Hann bendir á þann súrrealíska veruleika "að danski forsætisráðherrann þurfi að lýsa því yfir að Danir séu tilbúnir að verja konungsríkið reyni Bandaríkin - sem hafa hingað til verið helsti bandamaður þeirra - að hernema Grænland." Þetta og fjölmargt fleira er á dagskrá í þessum fjórtánda þætti.

Flekaskil - 13. þáttur

Við förum yfir helstu fréttir af leiðtogafundi NATO í Ankara sem lauk í dag, alvarlegar yfirlýsingar Trump um Grænland sem hann ætlar sér enn að eignast. Þungi Evrópu og Kanada innan bandalagsins eykst og Spánn virðist mega búast við efnahagslegum þrýstingi frá Bandaríkjunum ef marka má orð forsetans. Vægi alþjóðalaga er áfram umræðuefni en nú eru heilagar reglur fótboltans brotnar líka. Brothætt staða Íran og Bandaríkjanna versnar á nýjan leik og samantekt á fjölþáttaógnum og árásum Rússa varpar óhugnanlegu ljósi á stöðuna. Frétt í New Yorker: https://www.newyorker.com/magazine/2026/06/22/inside-the-ludicrous-deadly-serious-plan-to-take-over-greenland?fbclid=IwZXh0bgNhZW0CMTEAc3J0YwZhcHBfaWQPNDM3NjI2MzE2OTczNzg4AAEeSlK-xp04wPxTRBCT2CXtbEbCVOei3GuaMJGPf3FmU-6djSDi5w2f5NFDsqA_aem_QeGzuROKcxamuDGwz4DvHQ Frétt um Rússland: https://www.iiss.org/research-paper/2026/06/russias-uav-campaign-over-europe/?fbclid=IwZXh0bgNhZW0CMTEAc3J0YwZhcHBfaWQPNDM3NjI2MzE2OTczNzg4AAEe92XIQiWZdNoVNVTyLp6bWBX-olvzJ5I4P9oAJ9DhdVuuVzMfac-5ASwMmM8_aem_zLwOT7YhJ69uCjOFN8WCaA

Flekaskil - 12. þáttur

NATO á Flekaskilum! Við tökum stöðuna innan NATO fyrir í Flekaskilum - þegar vika er til sögulegs leiðtogafundar samtakanna í Ankara. Við ræðum þróun mála síðasta eitt og hálfa árið - frá því Trump varð forseti Bandaríkjanna. Rifjum upp yfirlýsingar um NATO og einstök aðildarland. Greinum stöðuna í Íran, samkomulagið um vopnahlé og áhrif átakanna á heiminn, hagkerfið, Íran og ekki síður Bandaríkin.

Flekaskil - 11. þáttur

Í ellefta þætti flekaskila veitir Þórdís Kolbrún innsýn í borðæfingu sem hún tók þátt í, ECFR Double Crisis Wargame, í París ásamt 45 reynslumiklum og háttsettum evróskum leiðtogum úr pólitík, stjórnsýslu og hernaðartengdum málum þar sem spjótin stóðu á Dönum og Grænlandi, - og Íslandi. Það að setja á svið atburðarrás vekur fjölda spurning um hvað dugir í alþjóðasamskiptum og bandalögum þegar til kastanna kemur. Flekaskil eru aðgengileg á öllum helstu hlaðvarpsveitum.

Flekaskil - 10. þáttur

Afleiðingarnar af opnu bréfi Zelenzkys. Trump vildi Iran-samning og slagsmál í afmælisgjöf. Norrænir fjölmiðlar afhjúpa gríðarlega uppbyggingu Rússa við landamæri Noregs, Finnlands og Eystrasaltsríkjanna. Og glænýr íslensk skýrsla um hættuna af drónum. Höfum við verið sofandi? Hljóð, mynd og eftirvinnsla: Þórarinn Hjartarson Tónlist: Halldór Eldjárn

Flekaskil - 9. þáttur

Opið bréf Zelenskís til Pútin. Þórdís Kolbrún ræðir framgöngu Trump Bandaríkjaforseta. Við tölum um stórmerkilegt páfabréf um gervigreind, ofurvald gervigreindarfyrirtækja og fasisma, svo fátt eitt sé nefnt. Flekaskil eru aðgengileg á öllum helstu hlaðvarpsveitum.

Flekaskil - 8. þáttur

Tuttugu heilræði gegn harðstjórn, Evrópa, smávaxinn kona sem stendur gegn ásælni stórveldis, að vera niðri fyrir um stöðu heimsmála og fleira og fleira í áttunda þætti Flekaskila. Hljóð, mynd og eftirvinnsla: Þórarinn Hjartarson Tónlist: Halldór Eldjárn
2 di 3