Heiða Þorleifsdóttir - Segir frá ættleiðingarferlinu í Kína - ættleiðingarþunglyndi - PMTO tengslamiðuð foreldrafærni
Allt um ættleiðingar di Selma Hafsteinsdottir
Note sull'episodio
Heiða Þorleifsdóttir ættleiddi dóttur sína frá Kína þegar hún var 18 mánaða gömul, fyrir átti hún dóttur sem kom með í ferðalagið mikla sem var þá 7 ára.
Hún segir frá ferðalaginu til Kína og hvernig ættleiðingin fór fram þar í landi, hún segir frá áskorunum og tengslamynduninni og lífinu eftir ættleiðinguna. Hún segir okkur frá ættleiðingarþunglyndi og ritgerð sem hún gerði um það málefni árið 2013 og niðurstöður hennar. Heiða er PMTO ráðgjafi og við ræðum þessa nálgun í uppeldinu og hvernig hún virkar, en PMTO er tengslamiðuð nálgun.
Heiða er Félagsráðgjafi og leikskólakennari og hún vinnur núna sem málastjóri samþættingar hjá Reykjavíkurborg.