
Truthbomber Podcastið
por TruthbomberTemporada 1
13. þáttur - Truthbomber skyldi í upphafi skoða.
Truthbomber allra landsmanna skrópaði í janúar en skellir einum nettum á borðið til að forðast fleiri fjarvistaskráningar. Forsetaframboð, snjókarlar og Eurovision eru meðal þess sem borið er á borð í þetta skiptið.12. þáttur - Ég sá mömmu kyssa Truthbomber
Árlegt jólaboð Truthbomber er ekki af verri endanum þetta árið Riff Raff, Ikea geitin, hatursglæpir vegna rabarbara og kapítalismi koma meðal annars við sögu. Gleðileg jól til allra nema Amaury Guichon og Ísraelshers11. þáttur - Truthbomber lítur um öxl
Truthbomber allra landsmanna fagnar 1. árs starfsafmæli sínu með líflegum umræðum um tímana tvenna. Nostalgían, innanhúsarkitektúr og umferðaröngþveiti ber meðal annars á góma til að lyfta greyið hlustendunum upp úr svartasta skammdeginu. Grindvíkinga viljum við fyrirfram biðja afsökunar www.patreon.com/Truthbomber, þar sem ekkert af viti gerist10. þáttur - Græddur er geymdur Truthbomber
Bomberinn hristir af sér haustlægðirnar og býr sig undir veturinn og fyllir búrskápinn af fjöri og fróðleik fyrir alla aldurshópa. Einræðisherrar, calzones og daglegt líf forfeðranna og yfirskegg koma m.a. við sögu. Örlyg viljum við fyrirfram biðja afsökunar9. þáttur - Truthbomber eru frá Venus...
Konur allra landa sameinist og leggið á hlustir, þar sem Truthbomber kemur færandi hendi með þátt sérstaklega handa ykkur!Stjörnuspá, samskipti kynjanna og raðmorðingjar ásamt ýmsu er krufið til mergjar.Viljum biðja hjólreiðafólk og hljómsveitina Tool fyrirfram afsökunar.8. þáttur - Brennt barn forðast Truthbomberinn
Nú þegar sumrinu er að ljúka og liðsmenn Truthbomber komnir með leið á lúsmýbitum og grilluðum pylsum, er kominn tími á nýjan, sneisafullan þátt!Guðni Th. í ruglinu, leiðinlegir Bretar, Stjörnustríð og margt fleira er tekið fyrir.7. þáttur - Rautt spjald á Truthbomber
Slakaðu þér í sófann, opnaðu einn kaldan og gargaðu á sjónvarpið þitt í móðursýkiskasti á meðan einhverjir guttar leika sér með bolta. Í þetta sinn eru Truthbomber komnir í dauðafæri og þruma sannleiknum í netið.6. þáttur - Hverjum þykir sinn Truthbomber fagur
Truthbomber allra landsmanna snýr aftur í tæka tíð fyrir sumarið.Úrillir pizzasendlar, erótísk glíma, kattaofnæmi og Bob Dylan ber meðal annars á góma Bombersins í drekkhlöðnum endurkomuþætti.5. þáttur - Un voyage culturel avec Truthbomber
Menn eru menningarlegir í þetta skiptið. Varpaðu af þér flíspeysunni, smelltu á þig alpahúfu og sötraðu á lífinu, leiknum og listinni með Truthbomber. Viljum biðja Svíþjóð fyrirfram afsökunar.4. þáttur - Einn Truthbomber með engu nema hráum
Þetta árið verða bollurnar fylltar með landsbyggðarstemningu, eitraðri karlmennsku og eldfjallaerótík. Þessu sporðrennir Truthbomber og skolar niður með Lewis Hamilton djús.