
Truthbomber Podcastið
por TruthbomberTemporada 1
23. þáttur - Jón Alone 2: Lost in Bókasafn ásamt Ingibjörgu
Jón fær heimsókn frá góðvini þáttarins, Ingibjörgu, í ljósi þess að Illugi var veikur heima. Varúlfar, World of Warcraft, heimilisofbeldi og látin amma Jóns er meðal annars til umræðu. Illuga og fjölskyldu viljum við fyrirfram biðja afsökunar.22. þáttur - Aðventubömmer ásamt Fannari rafvirkja
Liðsmenn Truthbomber leggja sig alla fram við að koma sér í jólagírinn, með mismiklum árangri. Misheppnuð framboð, pug hundar, UFC bardagamenn og Japanskir nördar á sýru koma allir við sögu, ásamt alls konar. Fannar rafvirki kíkir í heimsókn.21. þáttur - Hámenning/Lágmenning ásamt Degi Atlasyni
Ekkert lát er á gestagangi í Casa de la Truthbomber en í þetta skiptið mætir trymbillinn og menningarfrömuðurinn Dagur Atlason í heimsókn. Jón segir sjúkrasögur. Dagur mætir undirbúinn. Illugi rífur nærbuxurnar sínar. Hlustið og njótið.20. þáttur - Leyndardómar landsbyggðarinnar ásamt Stjána Gaddavír
Það er tekið djúpt í árina þetta skiptið, þar sem Truthbomber fá heimsókn frá Stjána Gaddavír og ræða svo mörg málefni að það er varla hægt að nefna þau öll. Landsbyggðin, heitur brauðréttur, sifjaspell og páfagaukar sem tala dönsku koma m.a. við sögu. Óla Máttlausa viljum við fyrirfram biðja afsökunar19. þáttur - Heilsukvíði og Kafkaískt hygge
Truthbomber býður haustið velkomið og sötrar á lafþunnu tei raunveruleikans. Andleg veikindi, tölvuleikjagerð og endurkoma vandamálahornsins mjaka sér inn í þetta skiptið. Blint fólk viljum við fyrirfram biðja afsökunar [insert braille text]18. þáttur - Hestasmygl, hlaupabóla og Hvíti riddarinn
Truthbomber snýr aftur úr sumarfríi með vasana fulla af ADHD og ekkert sérstakt þema eða umræðuefni. Sérstakir gestir mæta í hljóðver (og síma) til þess að ræða mikilvæg mál. Kengúrur viljum við sérstaklega biðja afsökunar fyrirfram.17. þáttur - Lausaleiksbörn og trompetleikarinn Pétur
Truthbomber allra landsmanna hnusar af leyndardómum Íslensks samtímalífs. Hvað gerist bak við luktar dyr á Hverfisgötu? Af hverju borða Akureyringar bara rusl? Hlustið, lærið og njótið. Skítamóral viljum við fyrirfram biðja afsökunar (plís ekki lemja okkur)16. þáttur - Barist um Bessastaði og helaumt grussy
Truthbomber menn taka handahlaup inn í sumarið með hyldjúpum umræðum um forsetakosningarnar, óeðlilegar kynvitundir og njósnaaðgerðir. Dýraríkið, Íslenska BDSM samfélagið og almenning viljum við fyrirfram biðja afsökunar.15. þáttur - Truthbomber kúgar bussurnar
Í þessum þætti er metnaði og frumleika hent út um gluggann og þess í stað er ekkert nema klósetthúmor og ærumeiðingar. Svona er nú fyrir manni komið. Maður hefði kannski getað tekið meiraprófið eða æft körfubolta eða eitthvað, en nei. Bara kúkabrandarar og nöldur. Þetta er það sem kennarar landsins eru að reyna að koma í veg fyrir með því að kenna líkindareikning og Brennu-Njáls sögu. En nei, auðvitað þurfti maður að rebela og eyða svona 6 árum skólagöngunnar í að vera í fýlu og að teikna typpi á flest snertanleg yfirborð skólabygginganna. Þvílík tragedía. Dóra DNA viljum við fyrirfram biðja afsökunar.14. þáttur - Ber er hver að baki nema sér Truthbomber eigi
Truthbomber allra landsmanna tekur vorinu fagnandi opnum örmum. Iðjuleysi, Færeyjar, sinnepsfíkn og gamlir menn á sýru koma öll við sögu. Gylfa Ægis viljum við fyrirfram biðja afsökunar.