
Notas del episodio
Viðmælendur þáttarins eru stofnendur Textílbarsins þær Hildigunnur Sigurðardóttir og Hrafnhildur Gísladóttir. Við ræðum um hvernig við getum breytt textílsóun í skapandi auðlind og hvers vegna hringrásarhagkerfið skiptir svona miklu máli í dag. Ertu með óklárað handavinnuverkefni í felum eða fulla poka af gömlum fötum? Textílbarinn sýnir okkur hvernig við gefum efninu nýtt líf með smá hugmyndaflugi og samveru í góðum félagskap.
Textílbarinn er með heimasíðu https://www.textilbarinn.is/
