Textílvarp 
Rannsóknarstofu í textíl

Textílvarp Rannsóknarstofu í textíl

por Ásdís Jóelsdóttir
Temporada 2026

Textívarp 3. 2026

Gestur Textílvarpsins er Sigmundur Páll Freysteinsson, Myndlista-, fata og textílhönnuður sem hefur menntað sig á því sviði og starfar á mótum hönnunar, textílllitunar og japanskrar menningar. Hann vinnur á mörkum hönnunar, vísinda og umhverfismála og hefur meðal annars verið að rannsaka hvernig hægt er að lita textíl með íslenskum og japönskum plöntum, þörungum og öðrum náttúrulegum hráefnum. Við köfum dýpra í þetta ferli, ræðum sjálbærni í tísku- og veltum fyrir okkur hvernig hönnun gæti litið út í framtíðinni. Hægt er að fylgjast nánar með Sigmundi á https://www.instagram.com/atelier.sigmundurpf/

Textílvarp 2. 2026

Textílvarpið fékk myndlista- og textíllistakonuna Rögnu Fróðadóttur í viðtal. Ragna lærði fata- og textílhönnun í París á árunum 1992-1995 og síðar við textíldeild Myndlista- og handíðarskólans frá 1996-1998. Ragna var um árabil deildastjóri textíldeildar Myndlistaskóla Reykjavíkur og formaður Textílfélagsins. Undanfarin 15 ár hefur Ragna búið og starfað til skiptis í New York, Berlín og Reykjavík. Hún var stödd hér á landi tímabundið vegna einkasýninga sinnar Bergmál í Hafnaborg. Þar bauð hún okkur ínn í töfrandi heim mynstra, lita, forma og áferða. Hún tekur einning þátt í vinnustofudvöl og þátttöku í Alþjóðlegu listahátíðinni Oceanus Hafsjór sem fer fram á Eyrabakka 15.maí-15.júní í ár. Hægt að skoða dagskrá á heimsíðu hátíðarinnar. https://www.oceanushafsjor.com/ Fyrir áhugasama þá verður opnunarhátíð 13.júní frá kl.13-18 á Eyrabakka. Til að vita meira um Rögnu Fróða þá er hún með vefsíðu https://www.ragnafroda.com/ og https://www.instagram.com/frodadottir/

Textílvarp 1. 2026

Viðmælendur þáttarins eru stofnendur Textílbarsins þær Hildigunnur Sigurðardóttir og Hrafnhildur Gísladóttir. Við ræðum um hvernig við getum breytt textílsóun í skapandi auðlind og hvers vegna hringrásarhagkerfið skiptir svona miklu máli í dag. Ertu með óklárað handavinnuverkefni í felum eða fulla poka af gömlum fötum? Textílbarinn sýnir okkur hvernig við gefum efninu nýtt líf með smá hugmyndaflugi og samveru í góðum félagskap. Textílbarinn er með heimasíðu https://www.textilbarinn.is/ https://www.instagram.com/textilbarinn https://www.facebook.com/profile.php?id=61557438000966
Temporada 2

Textílvarp 1. 2022

Viðtal við Grétu Sörensen um nýútkomna bók hennar Lopapeysubókin. Umsjón með þættinum hefur Soffía Margrét Magnúsdóttir og Selma Ragnarsdóttir.
Temporada 1

Textílvarp - 1. 2021

Viðtöl við eftirfarandi: Þráðhyggja Berglind Ósk Hlynsdóttir, fatahönnuður og Sólveig Hansdóttir, fatahönnuður linkur á instagram https://www.instagram.com/boskboskbosk/ Sjálfbærar og umhverfisvænar textílaðferðir – kennsluverkefni í textíl Kristína Berman, meistaranemi, MVS HÍ Leiðbeinandi: Ásdís Jóelsdóttir, lektor, MVS HÍ

Textílvarp 6. 2023

Viðtal við Coco Viktorsson fatahönnuð. Coco hefur starfað við ýmislegt sem viðkemur hönnun og búningagerð.

Textílvarp 5. 2023

Í þessum þætti er fjallað um rannsóknarstofu í textíl og tilurð hennar. Viðmælandi er Ásdís Ósk Jóelsdóttir, lektor í textíl og hönnun á Menntavísindasviði við HÍ, sem setti stofuna á legg en nær 40 aðilar koma að rannsóknarstofunni.

Textílvarp 4. 2023

Viðmælandi er Karl Aspelund, þjóðfræðingur og gestadósent við Háskóla Íslands og deildarstjóri í textíl og fatahönnun við University of Rhode Island. Í viðtalinu greinir hann frá rannsóknarverkefni sem tengist Nasa og búsetu í geimnum og sjálfbærum textíl.

Textilvarp 3. 2022

Þórunn María úr stjórn Rannsóknastofu í textíl heimsótti Textílmiðstöð Íslands á Blöndósi og tók viðtal við Elsu Arnardóttur, forstöðumann um stafræna textílsmiðju.

Textílvarp 2. 2022

Viðtal við Björgu Ingadóttir, fatahönnuð.