Note sull'episodio

Í þessum þætti fáum við til okkar doktorsnema við Menntavísindasvið, þær Kriselle Lou Suson Jónsdóttur og Önnu Katrínu Eiríksdóttur sem rannsaka fjöltyngi, máluppeldi og samstarf fjölskyldna og skóla í íslensku samfélagi. Þær byggja rannsóknir sínar meðal annars á reynslu fjölskyldna, nemenda og kennara um allt land og varpa ljósi á hvernig styðja má betur við börn með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn.

Kriselle fjallar um fjöltyngt máluppeldi og hlutverk foreldra í síbreytilegu málumhverfi barna á Íslandi, en Anna Katrín ræðir mikilvægi góðs samstarfs heimila og skóla og hvernig hnitmiðuð samskipti geta haft jákvæð áhrif á nám og líðan nemenda. Þær benda jafnframt á þann mikla styrk og auð sem felst í fjölbreyttri tungumálakunnáttu og bakgrunni barna og fjölskyldna þeirra.