Læsi, félagakennsla og lestrarfær...
Læsi, félagakennsla og lestrarfærni barna á Menntakviku
Menntavísindavarpið di Menntavísindavarpið
25 set 2024
23:34
Note sull'episodio

Lesfimipróf hafa verið gagnrýnd og áhyggjur eru uppi um að læsi og lestrarkunnáttu barna og ungmenna fari dalandi. Greint var frá því nýverið að 40 prósent nemenda í 6. bekk næðu ekki grunnviðmiði í lesfimi til að mynda.  

Auður Soffíu- og Björgvinsdóttir, aðjúnkt og doktorsnemi á Menntavísindasviði og fyrrum grunnskólakennari til margra ára mætti í Menntavísindavarpið og sagði frá niðurstöðum rannsóknar sinnar um læsi sem hún kynnir á Menntakviku og ræðir í Menntavísindavarpinu m.a. hvar við stöndum á Íslandi hvað varðar læsi, lestrarkunnáttu og hvernig megi bæta læsisfærni barna okkar.