„Aðeins 7% fótboltarannsókna hafa...
„Aðeins 7% fótboltarannsókna hafa verið gerðar á stúlkum“

Menntavísindavarpið di Menntavísindavarpið

Note sull'episodio

Rúna Sif Stefánsdóttir, lektor við Menntavísindasvið við Deild heilsueflingar, íþrótta og tómstunda leiðir rannsóknarverkefnið SKORA (Stúlkur, Knattspyrna og Rannsókn á Atgervi). Þar er líkamlegt atgervi knattspyrnustúlkna, andleg og félagsleg líðan, áhrif tíðahrings á tíðni meiðsla og brottfall stúlkna úr knattspyrnu á Íslandi skoðað. Rúna fer um víðan völl í Menntavísindavarpinu um stúlkur og knattspyrnuiðkun, talað er m.a. um að stúlkur slíti frekar krossbönd og að rannsóknir á íþróttaskóm hafa miðast við drengi.