EKKERT RUSL - Lena er orðin smá öfundsjúk út í kaup annarra kvenna. Ræðum það og dýfum okkur í viskubrunninn Magnús Jónsson, fyrrum veðurstofustjóra sem er einnig pabbi Lenu.
EKKERT RUSL di EKKERT RUSL - Lena og Margrét
Note sull'episodio
Nú þegar jólin nálgast þá örlar á öfund hjá Lenu Magnúsdóttur, þáttastjórnanda hlaðvarpsins Ekkert rusl, því hún upplifir að konur í kringum hana komi í hamingjukasti úr verslunarferðum með nýja skó, skart og föt. Hún er búin að hemja sig allverulega árið 2022 og kaupa ekkert nýtt nema samfellu sem hana bráðvantaði þegar hún var á leið í brúðkaup og áttaði sig á því að kjóllinn var hálfgagnsær og gamla samfellan hennar spratt af henni. Lena er mannleg og spennt fyrir því að kaupa sér eitthvað nýtt og fallegt á nýju ári. Hún talar um þetta í nýjasta þættinum og segir Margréti Stefánsdóttur, hinum þáttastjórnandanum að hún hafi oft séð föt með merkimiðanum á fatamörkuðum því fólk kaupi kannski flík í einhverju kaupæði sem kemur kannski ekki nógu vel út yfir brjóstin o.sfrv. Þær ræða í því samhengi föt og brjóst.
Magnús Jónsson, fyrrverandi ve ...