Birtingarmyndir

Birtingarmyndir

di Bergrún Andradóttir, Díana Sjöfn Jóhannsdóttir, Sjöfn Hauksdóttir
BMN: (500) Days of Summer
Velkomin í samúðarkortadeildina. Bergrún, Díana Sjöfn og Sjöfn dýfa sér í rómantísku gamanmyndina (500) Days of Summer og skoða birtingarmyndir eitraðrar karlmennsku, sérvitra álfadísa, allt of gáfaðra barna í kvikmyndum og sjálfrar ástarinnar. Sjöfn nær að fara yfir söguþráð myndarinnar á innan við hálftíma, persónulegt met, Díana þarf að sinna skyldum sem móðir og Bergrún ældi einu sinni á gólfið heima hjá sér.
Tilkynning
Það er komið aftur! Podcastið sem allir hafa beðið eftir! Eða hvað? Sökum tæknilegra örðugleika í ársbyrjun kemur næsti þáttur því miður ekki fyrr en í næstu viku en örvæntið ekki, hlustið á vafasöm hljóðgæði og vægt fliss til að hita upp fyrir komandi þátt.
Manic Pixie Dream Girl
Ert þú sérvitur álfadís? Eða hefur einhver annar gefið þér það hlutverk? Í þætti dagsins ræðum við Manic Pixie Dream Girl, staðalmyndina sem tröllreið indie-kvikmyndaheiminum frá um 2005 til 2015. Hvers vegna er staðalmyndin skaðleg og hvernig hefur hún þróast? Hefur hún haldið velli eða má finna hana falda í öðrum staðalmyndum kvenna? Og hvað með Manic Pixie Dream Boy? Hvað er að frétta af honum? Greinar: https://www.theatlantic.com/sexes/archive/2013/07/the-real-world-consequences-of-the-manic-pixie-dream-girl-clich-233/277645/ https://www.bitchmedia.org/article/harry-styles-soft-boy-aesthetic-manic-pixie-dream-boy https://www.salon.com/2014/07/15/imsorryforcoiningthephrasemanicpixiedream_girl/ https://www.glamour.com/story/the-manic-pixie-dream-girl-isnt-dead-shes-just-evolved
BMN: Candyman
Candyman. Candyman. Candyman. Það er Spooky Season í öllu sínu veldi og í tilefni Hrekkjavökunnar horfðum við á hryllingsmyndina Candyman (2021) í leikstjórn Nia DaCosta. Við veltum fyrir okkur hryllingsminnum, menningarátökum, miðstéttarvæðingu og kynþáttafordómum í myndinni sem og samfélaginu og spyrjum hinar eilífu spurningar: Af hverju er vondi karlinn alltaf fatlaður? Kíkið á: https://chicagoreader.com/news-politics/they-came-in-through-the-bathroom-mirror/ https://www.horrorbound.net/spooky-reads/the-forbidden-clive-barker-l https://en.wikipedia.org/wiki/Cabrini–Green_Homes https://myfavoritemurder.com/266-rave-after-rave/
Bara vinir
Verður þú að ríða vinum þínum? Svarið er oft á tíðum já, en birtingarmyndir sambanda gagnkynhneigðra kvenna og karla gefa í skyn að eingöngu vinátta sé óraunhæfur möguleiki. Við kíkjum á þrjár myndir með þemu vináttu og ásta, My Best Friend's Wedding, When Harry met Sally og Just Friends. Díana viðurkennir að hafa orðið skotin í vini, Sjöfn viðurkennir alvarlegan sleiksjúkdóm og Bergrún dansar á línunni. Endilega hlustið, vingast Við okkur og byrjið svo með okkur Ath, á mín. 46.40 ætlaði Bergrún að segja "ekki einkynhneigt" en tungan í henni rann til. Afsakið.
Met Gala
Borgaðir þú 25.000 dollara til að hlusta á þennan þátt? Ekki? Þá ertu sennilega ekki jafn ríkur og fólkið sem mætti á Met Gala til að sýna sig og sjá aðra. Við ræðum tískuna, ádeiluna, pólitíkina og allt hitt tengt Met Gala 2021, dæmum nokkur outfit og spyrjum alvöru spurninga eins og, hvað er Beyonce gömul, eru Jen og Ben saman í alvöru og er hárið á Jay Z ekta.
Madonnan, hóran og lokastelpan
Staðalmyndirnar eru víða og ekki síst í bíómyndum. Við kíkjum á einhliða kvenpersónur í kvikmyndum og einbeitum okkur að þremur erkitýpum til frekari greiningar. Við ræðum til dæmis Mean Girls, Grease, Halloween, House of Wax, Alien og auðvitð Vertigo. Svo leikum við auðvitað hinn fræga samkvæmisleik ´Hver myndi deyja fyrst ef þetta væri hryllingsmynd?´
Vampírur
Færðu þig lúðalegi Drakúla, Edward cullen er mættur! Í þætti dagsins ræðum við vampírur: birtingarmyndir þeirra í gegnum söguna og þróun ímyndar þeirra, frá fornkína, yfir til austur og norður Evrópu og alla leið til Forks, Washington. Þess má til gamans geta að þetta er fyrsti þátturinn sem við tókum upp, snemma 2021. Ji hvað við vorum ungar. Haltu fyrir hálsinn, athugaðu hvort þú eigir ekki örugglega hrísgrjón og skelltu þér i hlustun
Framakonan LIVE
Áður en sumarfríið skall á okkur vorum við Live á Instagram. Nú snúum við aftur úr fríi deilum með ykkur þessari live upptöku þar sem við fjöllum um birtingarmyndir framakonunnar. Við skoðum hina raunverulegu framakonu, framakonuna í kvikmyndum og sögu hinna vinnandi kvenna almennt. Við áhlustun mælum við með að hafa goðsagnakennda valdastöru Meryl Streep í Devil Wears Prada í huga og góða skál af poppkorni við hendina.
Mörk
Í þætti vikunnar ræðum við mörk þegar kemur að „kynlífssenum“ í kvikmyndum. Margar frægustu senunar eru vægast sagt vafasamar, og ef maður lítur aftur í kvikmyndasöguna má finna margt óþægilegt sem fer yfir mörk. Við kíkjum á 16 Candles, James okkar Bond (sem þarf á mikilli sálfræðihjálp að halda), The Wedding Crashers og fleiri gamlar og „góðar“. Þátturinn kemur með risa TW á allt sem við tölum um, nema í byrjuninni þegar við ræðum gallabuxnatísku, það er nokkuð öruggt.
1 di 3