Flekaskil

Flekaskil

por Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir og Dagur B. Eggertsson
Flekaskil - 14. þáttur
Heimurinn er breyttur og mikilvægt er að samfélagið horfist í augu við það og stjórnmálin taki mið af því. Í nýjum þætti Flekaskila ræðum við um eftirköst NATO-fundarins, fjöllum um nýjar afhjúpanir WSJ um rofið milli Bandaríkjanna, Evrópu og Kanda. Ræðum skrif Baldurs Þórhallssonar prófessors í stjórnmálafræði og fyrrum forsetaframbjóðanda þar sem hann varar íslensk stjórnvöld við værukærð í garð breyttrar stöðu og mikilvægi þess að uppfæra mat á ógnum gagnvart fullveldi Íslands í víðu samhengi. Hann bendir á þann súrrealíska veruleika "að danski forsætisráðherrann þurfi að lýsa því yfir að Danir séu tilbúnir að verja konungsríkið reyni Bandaríkin - sem hafa hingað til verið helsti bandamaður þeirra - að hernema Grænland." Þetta og fjölmargt fleira er á dagskrá í þessum fjórtánda þætti.
Flekaskil - 13. þáttur
Við förum yfir helstu fréttir af leiðtogafundi NATO í Ankara sem lauk í dag, alvarlegar yfirlýsingar Trump um Grænland sem hann ætlar sér enn að eignast. Þungi Evrópu og Kanada innan bandalagsins eykst og Spánn virðist mega búast við efnahagslegum þrýstingi frá Bandaríkjunum ef marka má orð forsetans. Vægi alþjóðalaga er áfram umræðuefni en nú eru heilagar reglur fótboltans brotnar líka. Brothætt staða Íran og Bandaríkjanna versnar á nýjan leik og samantekt á fjölþáttaógnum og árásum Rússa varpar óhugnanlegu ljósi á stöðuna. Frétt í New Yorker: https://www.newyorker.com/magazine/2026/06/22/inside-the-ludicrous-deadly-serious-plan-to-take-over-greenland?fbclid=IwZXh0bgNhZW0CMTEAc3J0YwZhcHBfaWQPNDM3NjI2MzE2OTczNzg4AAEeSlK-xp04wPxTRBCT2CXtbEbCVOei3GuaMJGPf3FmU-6djSDi5w2f5NFDsqA_aem_QeGzuROKcxamuDGwz4DvHQ Frétt um Rússland: https://www.iiss.org/research-paper/2026/06/russias-uav-campaign-over-europe/?fbclid=IwZXh0bgNhZW0CMTEAc3J0YwZhcHBfaWQPNDM3NjI2MzE2OTczNzg4AAEe92XIQiWZdNoVNVTyLp6bWBX-olvzJ5I4P9oAJ9DhdVuuVzMfac-5ASwMmM8_aem_zLwOT7YhJ69uCjOFN8WCaA
Flekaskil - 12. þáttur
NATO á Flekaskilum! Við tökum stöðuna innan NATO fyrir í Flekaskilum - þegar vika er til sögulegs leiðtogafundar samtakanna í Ankara. Við ræðum þróun mála síðasta eitt og hálfa árið - frá því Trump varð forseti Bandaríkjanna. Rifjum upp yfirlýsingar um NATO og einstök aðildarland. Greinum stöðuna í Íran, samkomulagið um vopnahlé og áhrif átakanna á heiminn, hagkerfið, Íran og ekki síður Bandaríkin.
Flekaskil - 11. þáttur
Í ellefta þætti flekaskila veitir Þórdís Kolbrún innsýn í borðæfingu sem hún tók þátt í, ECFR Double Crisis Wargame, í París ásamt 45 reynslumiklum og háttsettum evróskum leiðtogum úr pólitík, stjórnsýslu og hernaðartengdum málum þar sem spjótin stóðu á Dönum og Grænlandi, - og Íslandi. Það að setja á svið atburðarrás vekur fjölda spurning um hvað dugir í alþjóðasamskiptum og bandalögum þegar til kastanna kemur. Flekaskil eru aðgengileg á öllum helstu hlaðvarpsveitum.
Flekaskil - 10. þáttur
Afleiðingarnar af opnu bréfi Zelenzkys. Trump vildi Iran-samning og slagsmál í afmælisgjöf. Norrænir fjölmiðlar afhjúpa gríðarlega uppbyggingu Rússa við landamæri Noregs, Finnlands og Eystrasaltsríkjanna. Og glænýr íslensk skýrsla um hættuna af drónum. Höfum við verið sofandi? Hljóð, mynd og eftirvinnsla: Þórarinn Hjartarson Tónlist: Halldór Eldjárn
Flekaskil - 9. þáttur
Opið bréf Zelenskís til Pútin. Þórdís Kolbrún ræðir framgöngu Trump Bandaríkjaforseta. Við tölum um stórmerkilegt páfabréf um gervigreind, ofurvald gervigreindarfyrirtækja og fasisma, svo fátt eitt sé nefnt. Flekaskil eru aðgengileg á öllum helstu hlaðvarpsveitum.
Flekaskil - 8. þáttur
Tuttugu heilræði gegn harðstjórn, Evrópa, smávaxinn kona sem stendur gegn ásælni stórveldis, að vera niðri fyrir um stöðu heimsmála og fleira og fleira í áttunda þætti Flekaskila. Hljóð, mynd og eftirvinnsla: Þórarinn Hjartarson Tónlist: Halldór Eldjárn
Flekaskil - 7. þáttur
Það hitnaði í kolunum í Flekaskilum! Fjallað er um heimsókn Trump til Kína, ójöfnuð og ofurvald tækirisa. Ummæli Ólafs Ragnars um Evrópu og Bandaríkin. Þá spurningu hvort meiri hagsæld sé í Bandaríkjunum en Evrópu og fleira og fleira.
Flekaskil - 6. þáttur
Dagur B. Eggertsson og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir ræða um stöðu Úkraínu.
Flekaskil - 5. þáttur
Varnarsamningur Ísland og Bandaríkjanna átti 75 ára afmæli í vikunni. Höfum við tekið vörnum okkar, friði og skipulagi alþjóðakerfisins sem gefnu? Hvers vegna olli varnarsamningurinn svo miklum deilum og klofningi í samfélaginu og hvernig stendur hann í dag, nú þegar allir flokkar á Alþingi styðja hann og aðildina að NATO? Með samningnum hófst nýr kafli í sögu Íslands þar sem alþjóðamál, stórveldapólitík og íslensk fullveldisumræða fléttuðust saman á áður óþekktan hátt. Áhrif varnarsamningsins hafa verið pólitísk, efnahagsleg og samfélagsleg. Hann hefur kallað fram sterkar skoðanir um sjálfstæði Íslands, hervæðingu og stöðu landsins í alþjóðakerfinu. Hvaða áhrif hafa breytt Bandaríki á stöðu hans og okkar?
1 de 2