Unnur Björk Arnfjörð - Ættleiddi ...
Unnur Björk Arnfjörð - Ættleiddi þrjá stráka frá Tékklandi - hún segir frá þeirra mögnuðu sögu

Allt um ættleiðingar por Selma Hafsteinsdottir

Notas del episodio
Unnur Björk Arnfjörð og maðurinn hennar ættleiddu þrjá bræður frá Tékklandi, þeir voru þá orðnir 2, 3,5 og 5 ára gamlir á barnaheimilinu Most. Aðlögunin tók tíma og bjuggu þau nýbakaða fjölskyldan saman á barnaheimilinu í 16 daga og hafa þau hjónin því mjög mikla innsýn inn í þennan erfiða veruleika sem ættleiddu börnin okkar koma frá. Ferðalagið þeirra var ansi skrautlegt og þurftu þau m.a. Að búa úti í Tékklandi í 6 mánuði áður en þau fluttu til Ísafjarðar og aðlöguðust lífinu þar sem fjölskylda. Unnur fer með okkur í allan tilfinningarússíbanann frá byrjun til enda og þetta er engin smá saga sem þau eiga!Unnur er kennari, Tómstunda og félagsmálafræðingur og líðheilsufræðingur og móðir þriggja dásamlegra drengja. Unnur er gullmoli sem talar um hlutina eins og þeir eru og er alveg ótrúlega einlæg, opin og fáranlega skemmtileg!