Elísabet Hrund Salvarsdóttir - Framkvæmdarstjóri Íslenskrar ættleiðingar segir frá hennar sögu
Allt um ættleiðingar por Selma Hafsteinsdottir
Notas del episodio
Elísabet segir frá sinni sögu og þeirra vegferð að eignast börn! Þau hjónin hafa farið tvisvar í gegnum ættleiðingarferlið og eiga tvö yndisleg börn. Þau fengu son sinn í hendurnar þegar hann var eins árs en stúlkuna fengu þau nokkrum árum seinna þegar hún var rúmlega þriggja ára.
Hún segir frá í einlægni hvernig það er að ganga í gegnum ófrjósemi og ættleiðingar, áskoranir í foreldrahlutverkinu og tölum um það sem er erfitt að ræða og heyra.
Lífið eftir ættleiðingar er svo sannarlega ekki dans á rósum og hvað þá fyrir yndislegu börnin sem hafa því miður þurft að ganga í gegnum allskonar erfiðleika á sinni stuttu ævi áður en þau eignast fjölskyldu.
Það er mikill heiður að fá þessa kjarnakonu í spjall, hún sinnir mjög mikilvægu starfi sem framkvæmdarstjóri Íslenskrar ættleiðingar og hún brennur fyrir betrumbætingu í ættleiðinga ...