Notas del episodio
„Við höfum séð í okkar rannsóknum að þeir sem hafa farið í gegnum námið eru allir ánægðir, þeim finnst þeir hafa vaxið ásmegin í kennslu og vita betur hvað þeir eru að gera og hvers vegna þau eru að kenna. Þau hafa betra orðfæri og hugtök til að tala um kennslu við aðra. Svo er það samfélagið sem þau fá með því að kynnast og vera með kennurum af öllum sviðum Háskóla Íslands,“ segir Guðrún Geirsdóttir, prófessor og fagstjóri Kennslumiðstöðvar Háskóla Íslands fer fyrir námi í háskólakennslufræði við Háskóla Íslands í nýjasta varpið Menntavísindavarpsins. Þar ræðir hún námið og verkefnið Heimahöfn í tengslum við það.