Notas del episodio
Bryndís Gunnarsdóttir varði nýverið doktorsrannsókn sína, Félagslyndi ungra leikskólabarna: Rannsókn á óyrtum félagslegum samskiptum í jafningjahópnum og mætti í Menntavísindavarpið á dögunum þar sem segir frá rannsókninni, hvað kom á óvart í niðurstöðunum og hvernig þær geta nýst áfram. Í doktorsrannsókninni fjallar hún um félagslyndi (e. sociality) ungra leikskólabarna með áherslu á þátttöku þeirra og færni í samskiptum við jafningja. Sérstaklega var skoðað hvernig þau beita óyrtum aðferðum til að taka virkan þátt í jafningjahóp, móta hann í samvinnu við önnur börn og skapa tilfinningu fyrir hinu „sameiginlega við“ (e. mutual we).