Hnífaburður grunnskólabarna, alge...
Hnífaburður grunnskólabarna, algengi og ástæður til umræðu á Menntakviku

Menntavísindavarpið por Menntavísindavarpið

Notas del episodio

Síðastliðið vor var í fyrsta sinn spurt um hnífaburð í Íslensku æskulýðsrannsókninni sem Menntavísindastofnun Menntavísindasviðs Háskóla Íslands stýrir. Rannsóknin er framkvæmd á hverju ári í grunnskólum en annað hvert ár í framhaldsskólum.

Þær Ragný Þóra Guðjohnsen, dósent við Menntavísindasvið og er faglegur stjórnandi Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar og Kolbrún Þ. Pálsdóttir, forseti Menntavísindasviðs kynna niðurstöður íslensku æskulýðsrannsóknar á Menntakviku árlegri ráðstefnu Menntavísindasviðs sem fer fram dagana 26.-27.september.

Menntavísindavarpið, nýtt hlaðvarp Menntavísindasviðs HÍ ræddi við Ragnýju og Kolbrúnu um aukinn vopnaburð ungmenna, Íslensku æskulýðsrannsóknina og hvernig styðja megi við börn sem finna sig ekki tilheyra.