Hvers vegna er mikilvægt að ranns...
Hvers vegna er mikilvægt að rannsaka heimalestur?

Menntavísindavarpið por Menntavísindavarpið

Notas del episodio

Karen Rut Gísladóttir, prófessor við Menntavísindasvið og Anna Kristina Regina Söderström, doktorsnemi í þjóðfræði rannsaka um þessar mundir heimalestur. Þær telja að tryggja þurfi jafnrétti í kringum lestrarþjálfun barna, og ef lestur er settur alfarið á hendur foreldra og fjölskyldna þá er  hætta á því að börn fái mismikla þjálfun. Niðurstöður síðustu PISA rannsóknar benda til þess að það eru tengsl milli félags- og efnahagslegra aðstæðna fjölskyldna og  lesskilnings. Að þeirra mati er mikilvægt að rýna í það og skoða nánar. Tilgangur rannsóknar þeirra er að stuðla að samtali um samstarf milli skóla og  fjölskyldna í tengslum við lestrarnám og skoða reynslu foreldra af heimalestri og hvernig ólíkar aðstæður fjölskyldna endurspeglast í framkvæmd heimalesturs. 


Hægt er að lesa meira um rannsóknina á rannsóknarsíðu Menntavísinda ... 

Leer más